12 milljarða gjaldþrot Guðmundar

Guðmundur Ólason (t.h.) ásamt Karli Wernerssyni.
Guðmundur Ólason (t.h.) ásamt Karli Wernerssyni. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Aðeins 86 milljónir fengust upp í tæplega 12 milljarða kröfur vegna gjaldþrots Guðmundar Ólasonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Milestone, en það nemur um 0,7%. Samkvæmt auglýsingu í Lögbirtingablaðinu voru veðkröfur í búið samtals 133,8 milljónir og fengust 86,4 milljónir upp í þær kröfur. Ekkert fékkst hins vegar upp í almennar kröfur, en samtals voru lýstar kröfur upp á 11,99 milljarða.

Guðmundur var í fyrra dæmdur ásamt þeim Karli og Steingrími Wernerssonum til að greiða þrotabúi Milestone 5,2 milljarða vegna millifærslna sem voru gerðar á reikn­ing Ing­unn­ar Werners­dótt­ur, syst­ur bræðranna, en með því létu þeir fé­lagið fjár­magna kaup sín á hluta­fé Ing­unn­ar í Milest­one. Áður höfðu þre­menn­ing­arn­ir hlotið fang­els­is­dóm vegna viðskipt­anna.

Guðmund­ur var fram­kvæmda­stjóri Milest­one á þess­um tíma sem greiðslurn­ar voru innt­ar af hendi og færðar í bók­hald og var með prókúru fyr­ir fé­lagið.

Þá voru þremenningarnir einnig dæmdir til að greiða þrotabúinu 126 milljónir vegna  lán­veit­ing­ar Milest­one til einka­hluta­fé­lags­ins Sátt­ar árið 2007, en fé­lagið var í eigu for­stjóra Milest­one. Var lánið notað til að greiða fyr­ir hluta­bréf ann­ars fé­lags for­stjór­ans sem keypti hlut í Öskum Capital, dótt­ur­fé­lagi Milest­one.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert