Konur á þingi ætla að ræða ummælin

Hópur kvenna á Alþingi ætlar að hittast í dag og …
Hópur kvenna á Alþingi ætlar að hittast í dag og ræða ummæli sem nokkrir þingmenn Miðflokksins og Flokks fólksins létu falla um samstarfskonur sínar á bar í miðbænum í síðustu viku. mbl.is/Ómar Óskarsson

Hópur kvenna á þingi ætlar að koma saman í hádeginu og ræða þau ummæli sem nokkrir þingmenn Miðflokksins og Flokks fólksins létu falla um samstarfsmenn sína á barn­um Klaustri í síðustu viku.

Samkvæmt heimildum mbl.is ræddust þær konur við sem getið er í upptökunni í gærkvöldi og í framhaldinu var ákveðið að kalla saman konur á þingi til fundar. 

Á upp­tök­unni má heyra þing­menn beggja flokk­anna ræða menn og mál­efni með hætti sem flest­um þykir óviðeig­andi. Þar er meðal ann­ars rætt um út­lit stjórn­mála­kvenna, gáfnafar og and­lega eig­in­leika. Meðal kvenna sem þingmennirnir töluðu um með niðrandi hætti eru Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, og Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og varaformaður þingflokksins, segir í samtali við mbl.is að fundurinn hafi verið ákveðinn og að líklega muni konur úr öllum þingflokkum sitja fundinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert