„Starfsmenn Klausturs áttu þar hvergi hlut í máli“

Forsvarsmenn Klaustur bar segja að starfsmenn staðarins hafi ekki átt þátt í því að taka upp samtal þingmanna Miðflokksins og Flokks fólksins 20. nóvember. Þeir segjast enn fremur harma það að nafn staðarins hafi verið dregið inn í umræðuna. 

Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem birt er á Facebook-síðu staðarins:

„Vegna fréttafluttnings [sic] af upptökum á samtali alþingismanna á Klaustur bar þann 20. nóvember vilja forsvarsmenn staðarins taka það skýrt fram að starfsmenn Klausturs áttu þar hvergi hlut í máli. Einnig skal það tekið fram að engar hljóðupptökur eru á myndavélum staðarins. Klaustur Bar harmar það að nafn staðarins hafi verið dregið inn í fréttaflutning af þessu máli enda sé það almennt stefna staðarins að fólki sé frjálst að ræða saman að vild þar inni burtséð frá persónulegum skoðunum staðarhaldara, starfsmanna eða annarra gesta, upptökur af hverskyns toga eru ekki samþykktar af staðnum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert