Vilja að siðnefnd fjalli um ummælin

mbl.is/​Hari

Níu þingmenn úr röðum Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Vinstri grænna og Pírata hafa óskað eftir því að forsætisnefnd Alþingis taki upp mál er varðar niðrandi ummæli og háttsemi þingmannahóps sem hafa verið til umfjöllunar í fjölmiðlum. Vilja þeir að siðanefnd fjalli um málið. 

Þetta kemur fram í erindi sem þingmennirnir hafa sent til forsætisnefndar. Það er svohljóðandi:

„Við undirrituð óskum eftir því að forsætisnefnd taki upp mál er varðar niðrandi ummæli og háttsemi þingmannahóps sem fjölmiðlar hafa verið að fjalla um síðastliðinn sólarhring.

Þess er óskað að forsætisnefnd vísi þessu erindi til siðanefndar þar sem ummælin og háttsemin stangast á við 5. og 7. reglur siðareglna þingmanna og óski eftir að siðanefnd fjalli um málið og skili forsætisnefnd niðurstöðum hið fyrsta.

Það þarf ekki að tíunda ástæðu erindis okkar frekar.“

Eftirfarandi þingmenn fara fram á erindið.

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður VG.

Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar.

Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar.

Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar. 

Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata.

Jón Steindór Valdimarsson, þingmaður Viðreisnar.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður VG.

Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert