Harma ummæli samflokksmanna sinna

Bæjarfulltrúar Miðflokksins í Suðurkjördæmi harma niðrandi ummæli sem þingmenn Miðflokksins …
Bæjarfulltrúar Miðflokksins í Suðurkjördæmi harma niðrandi ummæli sem þingmenn Miðflokksins létu falla um samstarfsfólk sitt 20. nóvember síðastliðinn á Klaustur Bar í Reykjavík og náðust á hljóðupptöku. mbl.is/Þorsteinn Friðrik

Bæjarfulltrúar Miðflokksins í Suðurkjördæmi hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir harma niðrandi ummæli sem þingmenn Miðflokksins létu falla um samborgara sína og samstarfsfólk sitt 20. nóvember síðastliðinn á Klaustur Bar í Reykjavík og náðust á hljóðupptöku.

„Við vonum að þingflokkur Miðflokksins komist að ásættanlegri niðurstöðu á fundi sínum í dag fyrir almenning varðandi áframhaldandi þingmennsku þeirra þingmanna sem þarna áttu hlut að máli,“ segir í yfirlýsingunni en þingmenn flokksins munu ræða málin á fundi síðar í dag. 

Ef niðurstaða fundarins verður ekki ásættanleg að mati bæjarfulltrúanna munu þeir óska eftir flokkráðsfundi þar sem félagar Miðflokksins taka ákvörðun um framhaldið.

Undir yfirlýsinguna skrifa sveitarstjórnarfulltrúar Miðflokksins í Suðurkjördæmi, það er Hallfríður G. Hólmgrímsdóttir (Grindavík), Margrét Þórarinsdóttir (Reykjanesbæ) og Tómas Ellert Tómasson (Árborg). 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert