63 doktorar fengu gullmerki

Doktorarnir og fulltrúar þeirra ásamt forseta Íslands, rektor Háskóla Íslands, …
Doktorarnir og fulltrúar þeirra ásamt forseta Íslands, rektor Háskóla Íslands, aðstoðarrektorum og forsetum fræðasviða skólans að lokinni athöfn. Ljósmynd Kristinn Ingvarsson

Sextíu og þrír doktorar tóku í morgun við gullmerki Háskóla Íslands að viðstöddum forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni, á árlegri Hátíð brautskráðra doktora í hátíðasal skólans.

Doktorarnir eiga það sameiginlegt að hafa brautskráðst frá Háskóla Íslands á tímabilinu 1. desember 2017 til 1. desember 2018 og er þetta í áttunda sinn sem Háskólinn heiðrar doktora frá skólanum með þessum hætti.

Háskóli Íslands hefur í á annan áratug unnið að markvissri eflingu doktorsnáms og nú stunda um 600 nemendur slíkt nám við skólann, segir í fréttatilkynningu.

Við athöfnina í dag tóku doktorsnemar frá öllum fimm fræðasviðum Háskóla Íslands við gullmerki skólans, alls 24 karlar og 39 konur. „Það er til marks um hversu alþjóðlegur Háskóli Íslands er orðinn að 44 prósent doktoranna, sem brautskráðust á tímabilinu 1. desember 2017 til 1. desember 2018, eru með erlent ríkisfang. Sá hópur kemur víða að, frá 19 löndum Evrópu, Asíu og Norður-Ameríku. Enn fremur brautskrást fimm doktoranna með sameiginlega doktorsgráðu frá Háskóla Íslands og erlendum háskóla. Við þetta má bæta að alls munu tæplega 60 nemar ljúka doktorsprófi á árinu 2018 og verður heildarfjöldi doktora sem brautskráðst hefur frá Háskóla Íslands frá upphafi á sjöunda hundrað í lok árs.

Hefð er fyrir því að forseti Íslands ávarpi brautskráða doktora við athöfnina í hátíðasal og færði Guðni Th. Jóhannesson doktorunum bæði hamingjuóskir og hvatningarorð í ræðu sinni í dag. Þá flutti Skafti Ingimarsson, doktor í sagnfræði, ávarp fyrir hönd nýbrautskráðra doktora,“ segir í tilkynningu.

Yfirlit yfir doktorana

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert