„Hjáseta í hnífaköstum“

Ólafur Ísleifsson, þingmaður.
Ólafur Ísleifsson, þingmaður. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ólafur Ísleifsson segist ekki gera lítið úr mistökum sem hann gerði en hann hafi yfirgefið samkvæmið þegar hann sá að í óefni stefndi. 

„Ákvörðun stjórnar Flokks fólksins um að reka okkur Karl Gauta Hjaltason alþingismann úr flokknum kemur á óvart. Ég geri ekki lítið úr þeim mistökum mínum að sitja þegjandi undir þeim ljótu orðum sem féllu þetta kvöld á veitingahúsi. Ég vek hins vegar athygli á því að í umfjöllun fjölmiðla hafa ekki verið rakin til mín orð sem hægt er að túlka sem siðferðislega ámælisverð eða neikvæð í garð nokkurs manns. Ég yfirgaf þetta samkvæmi þegar ég sá að í óefni stefndi. Þetta hefði ég átt að sjá fyrr og fara fyrr. Kemur spánskt fyrir sjónir að nærvera mín, en um leið hjáseta í hnífaköstum þessa orðljóta samkvæmis, þyki gild ástæða til brottreksturs úr stjórnmálaflokki.

Með þessari stjórnarákvörðun sýnast ný viðmið verið sett í Flokki fólksins. Vonandi er að þeir sem eftir eru standist þær siðferðiskröfur sem til þeirra hljóta héðan í frá að vera gerðar. Ég óttast að ákvörðun stjórnarinnar muni eftir á að hyggja þykja illa ígrunduð. Með þátttöku minni í þessu samsæti gerði ég ámælisverð mistök sem ég biðst afsökunar á. Ákvörðunin um brottrekstur er hins vegar stjórnarinnar og mér er til efs að þar hafi framtíðarhagsmunir flokksins verið hafðir að leiðarljósi. Á þeirri ákvörðun ber ég enga ábyrgð en stjórnin alla.

Í störfum mínum sem óháður þingmaður utan flokka mun ég halda áfram baráttu fyrir þeim málefnum og áherslum sem ég lofaði kjósendum í aðdraganda alþingiskosninganna 2017,“ segir í yfirlýsingu Ólafs sem hann sendi á fjölmiðla í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert