Fordæma ummæli sem féllu á barnum

Stjórn Framsóknarfélags Reykjavíkur fordæmir harðlega ummæli sem þingmenn höfðu um samstarfsfólk sitt á bar í síðasta mánuði. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem stjórnin hefur sent til fjölmiðla.

„Stjórn Framsóknarfélags Reykjavíkur (FR) fordæmir harðlega þau ummæli sem þingmenn Miðflokks og Flokks fólksins viðhöfðu um samstarfsfólk sitt á Alþingi á veitingastaðnum Klaustur þann 20. nóvember sl.

Það að kjörnir fulltrúar séu uppvísir um að viðhafðast svo viðurstyggileg ummæli í garð kvenna, fatlaðs fólks og samkynhneigðra eins og nú hefur verið ljóstrað upp um er með öllu óafsakanlegt.

Stjórn FR hafnar því að orðræða sem þessi viðgangist almennt meðal fólks í stjórnmálum og finnst með þeim orðum harkalega vegið að fólki í öllum flokkum eða hvar sem það starfar í stjórnmálum.

Það að starfa í stjórnmálum er hugsjónarstarf og óeigingjarnt starf sem að mestu leyti er unnið í sjálfboðavinnu þeirra sem það gera. Fólk gerir það af einlægum áhuga til að bæta samfélag sitt en ekki til að ota sínum tota og níða mann og annan.

Stjórn FR telur viðkomandi þingmenn rúna trausti og ei sætt á Alþingi sem fulltrúar lands og þjóðar,“ segir í ályktun sem stjórn Framsóknarfélags Reykjavíkur hefur sent frá sér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert