Uppræta verði alla hatursorðræðu

Frá Alþingi.
Frá Alþingi. mbl.is/RAX

Jafnréttisnefnd Kennarasambands Íslands segir að mikilvægt sé að uppræta alla hatursfulla orðræðu „sem og þá sem var viðhöfð í margumræddu hófi þannig að hún verði aldrei viðurkennd“. Þetta kemur fram í ályktun frá nefndinni vegna Klausturmálsins svokallaða.

Jafnréttisnefnd KÍ hvetur til fræðslu um jafnréttismál á Alþingi og einnig er lögð áhersla á að nemendur á öllum skólastigum fái kennslu í jafnréttis- og kynjafræðum. 

Ályktun jafnréttisnefndar KÍ hljóðar svo: 

Vegna frétta af ógeðfelldu orðbragði nokkurra þjóðkjörinna einstaklinga vill jafnréttisnefnd Kennarasambands Íslands koma eftirfarandi á framfæri:

Jafnréttisnefnd KÍ tekur undir og hvetur til þess að fræðsla um jafnréttismál verði hluti af fræðslu Alþingisfólks. Ennfremur leggur hún áherslu á mikilvægi þess að jafnréttis- og kynjafræðsla verði kennd og jafnréttissjónarmið höfð að leiðarljósi á öllum skólastigum. Mikilvægt er að uppræta alla hatursfulla orðræðu sem og þá sem viðhöfð var í margumræddu hófi þannig að hún verði aldrei viðurkennd og útskýra skaðsemi hennar. Höfum hugfast að áheyrendur frétta eru líka á barnsaldri og fyrir þeim má hugarfar og tungutak sem þetta aldrei verða eðlilegt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert