74% þykir réttlætanlegt að ákveðnar starfsstéttir beiti verkfalli

Konur voru líklegri en karlar til að segja verkföll réttlætanleg …
Konur voru líklegri en karlar til að segja verkföll réttlætanleg en 66% kvenna kváðust reiðubúnar til að taka þátt í verkfalli, samanborið við 54% karla. mbl.is/Golli

Nærri þrír af hverjum fjórum (74%) telja aðstæður á vinnumarkaði vera með þeim hætti að réttlætanlegt sé fyrir ákveðnar stafsstéttir að beita verkfalli til að ýta á um bætt starfskjör og meirihluti (59%) er tilbúinn að taka þátt í verkfalli til að bæta starfskjör sín og/eða annarra.

Þetta sýna niðurstöður nýrrar könnunar MMR sem framkvæmd var dagana 15.-21. nóvember 2018.

Alls kváðust 13% svarenda óviss um hvort verkföll væru réttlætanleg aðferð til að ýta á um bætt starfskjör. Þá kváðu 15% spurninguna um hvort þau væru tilbúin að taka þátt í verkfalli til að bæta starfskjör sín ekki eiga við aðstæður sínar á vinnumarkaði, að því er fram kemur í könnuninni.

Þá segir, að konur (81%) hafi reynst vera líklegri en karlar (68%) til að segja aðstæður á vinnumarkaði vera með þeim hætti að réttlætanlegt sé fyrir ákveðnar starfsstéttir að beita verkfalli á næstu misserum til að ýta á um bætt starfskjör.

Jákvæðni gagnvart réttlætanleika verkfalla fór minnkandi með auknum aldri en 84% svarenda á aldrinum 18-29 ára sögðu aðstæður með þeim hætti að verkföll væru réttlætanleg, samanborið við 75% þeirra 30-49 ára, 70% þeirra 50-67 ára og 56% þeirra 68 ára og eldri.

Svarendur á landsbyggðinni (77%) reyndust líklegri en íbúar höfuðborgarsvæðisins (70%) til að segjast telja verkföll réttlætanleg. Þá voru svarendur sem lokið höfðu skólagöngu sinni eftir grunnskólanám (81%) líklegri en aðrir til að telja verkföll réttlætanleg miðað við aðstæður á vinnumarkaði. Stjórnendur og æðstu embættismenn reyndust líklegastir allra starfsstétta til að vera mótfallin verkfallsaðgerðum en einungis 37% þeirra sögðu þau réttlætanleg í kjarabaráttu starfsstétta. Námsmenn reyndust hins vegar líklegastir til að vera fylgjandi eða 84%. Þá voru þeir tekjuhæstu (66%) ólíklegri en aðrir til að segja verkföll réttlætanleg.

Ef litið er til stjórnmálaskoðana má sjá að stuðningsfólk Flokks fólksins (97%) og Pírata (96%) reyndist líklegast til að segja verkföll réttlætanleg miðað við aðstæður á vinnumarkaði en stuðningsfólk Sjálfstæðisflokks (29%) og Miðflokks (61%) reyndist ólíklegast til að telja notkun verkfalla réttlætanlega í kjarabaráttu starfsstétta, að því er kemur fram í könnun MMR. 

Könnun MMR.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert