23% Suðurnesjabúa eru innflytjendur

Innflytjendur auðga mannlífið á Íslandi. Samanlagt er fyrsta og önnur …
Innflytjendur auðga mannlífið á Íslandi. Samanlagt er fyrsta og önnur kynslóð innflytjenda 13,9% af mannfjöldanum. mbl.is/Rax

Alls voru 43.736 innflytjendur á Íslandi í byrjun árs eða 12,6% mannfjöldans. Það er fjölgun frá því í fyrra þegar þeir voru 10,6% landsmanna (35.997). Fjölgun innflytjenda heldur því áfram en frá árinu 2012 hefur þeim fjölgað úr því að vera 8,0% mannfjöldans upp í 12,6%. Þetta kemur fram í frétt Hagstofu Íslands.

Annarri kynslóð innflytjenda fjölgaði einnig á milli ára, voru 4.473 í fyrra en 4.861 nú. Samanlagt er fyrsta og önnur kynslóð innflytjenda 13,9% af mannfjöldanum og hefur það hlutfall aldrei verið hærra. Einstaklingum með erlendan bakgrunn, öðrum en innflytjendum, fjölgaði einnig lítillega milli ára, voru 6,8% mannfjöldans í fyrra en 6,9% nú.

Innflytjandi er einstaklingur sem er fæddur erlendis og á foreldra sem einnig eru fæddir erlendis, svo og báðir afar og ömmur. Önnur kynslóð innflytjenda eru einstaklingar sem fæddir eru á Íslandi og eiga foreldra sem báðir eru innflytjendur. Fólk er talið hafa erlendan bakgrunn ef annað foreldrið er erlent. Einstaklingur sem fæddist erlendis en á foreldra sem báðir eru fæddir hér á landi telst einnig hafa erlendan bakgrunn.

Langflestir frá Póllandi

Eins og síðustu ár eru Pólverjar langfjölmennasti hópur innflytjenda hér á landi. Um áramót voru 16.970 einstaklingar frá Póllandi eða 38,8% allra innflytjenda. Þar á eftir koma innflytjendur frá Litháen (5,5%) og Filippseyjum (4,0%). Pólskir karlar eru 42,2% allra karlkyns innflytjenda eða 10.037 af 23.775. Litháískir karlar eru næstfjölmennastir (6,2%) og síðan karlar með uppruna í Lettlandi (3,5%). Pólskar konur eru 34,7% kvenkyns innflytjenda og næst á eftir þeim eru konur frá Filippseyjum (5,9%), þá konur frá Litháen (4,8%).

Fækkun meðal þeirra sem fá íslenskan ríkisborgararétt

Um áramót bjuggu 30.856 fyrstu og annarrar kynslóðar innflytjendur á höfuðborgarsvæðinu eða 63,5% allra innflytjenda á landinu. Hlutfall innflytjenda af mannfjölda var mest á Suðurnesjum en þar voru 23,3% innflytjendur af fyrstu eða annarri kynslóð. Næsthæst er hlutfallið á Vestfjörðum þar sem 17,6% mannfjöldans voru innflytjendur eða börn þeirra. Lægst er hlutfallið á Norðurlandi vestra en þar voru 6,6% mannfjöldans innflytjendur eða börn þeirra.

Í fyrra fengu 637 einstaklingar íslenskan ríkisborgararétt og er það nokkur fækkun frá fyrra ári þegar 703 einstaklingar fengu íslenskt ríkisfang. Af þeim 637 einstaklingum sem fengu íslenskt ríkisfang höfðu langflestir áður verið með ríkisfang frá Póllandi eða 223 og næstflestir verið með ríkisfang frá Filippseyjum (41). Árið 1991 fengu fleiri karlar en konur íslenskt ríkisfang en á hverju ári eftir það hafa konur verið í meirihluta nýrra íslenskra ríkisborgara. Það átti einnig við í fyrra þegar 377 konur fengu íslenskan ríkisborgararétt en 260 karlar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert