Hafnar því að hafa brotið gegn sáttinni

mbl.is/Eggert

„Íslandspóstur tekur mjög alvarlega þá skyldu sína að uppfylla sáttina sem fyrirtækið gerði við Samkeppniseftirlitið og hefur lagt sig fram um að fylgja í einu og öllu þeim fyrirmælum sem þar koma fram,“ segir í fréttatilkynningu frá Íslandspósti vegna ásakana Félags atvinnurekenda um að fyrirtækið hafi gerst brotlegt við sátt við Samkeppniseftirlitið. Segir Íslandspóstur rangt að brotið hafi verið gegn sáttinni.

„Rétt er að í sáttinni komi fram að reka eigi félagið ePóst ehf. í dótturfélagi, líkt og Félag atvinnurekenda hefur bent á, en í sáttinni kemur einnig fram að ef svo miklar breytingar eiga sér stað á starfsemi dótturfélags að hún hafi ekki lengur samkeppnislega þýðingu, líkt og raunin hefur orðið með ePóst, geti Íslandspóstur óskað eftir áliti eftirlitsnefndarinnar á því að færa rekstur þess í staðinn inn í móðurfélagið.“

Telur Íslandspóstur að með þeirri ráðstöfun sem fyrirhuguð er með sameiningu félaganna sé markmiðum sáttarinnar náð. „Stjórn Íslandspósts tók málefni ePósts ehf. fyrir á fundi sínum í lok júní sl. og samþykkti að hefja undirbúning erindis þessa efnis til eftirlitsnefndar um framkvæmd sáttarinnar. Um er að ræða töluvert umfangsmikið verkefni og því eðlilegt að það taki nokkurn tíma í vinnslu, en nefndinni hefur verið haldið upplýstri um gang mála. Formlegt og fullbúið erindi barst nefndinni svo í október.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert