Vinningar gengu út í öllum flokkum

Aðalvinningur kvöldsins í Víkingalottó gekk út að þessu sinni, sem …
Aðalvinningur kvöldsins í Víkingalottó gekk út að þessu sinni, sem og 2. og 3. vinningur.

Vinningar gengu út í öllum flokkum í útdrætti kvöldsins í Víkingalottó. Fyrsti vinningur, rúmlega 1,3 milljarðar, og annar vinningur, rúmlega 32,6 milljónir, fóru báðir til Noregs.  

Hinn alíslenski þriðji vinningur kom á áskriftarmiða og var upp á rúmlega 1,8 milljónir króna. 

Þá voru fjórir með fjóra réttar í Jóker og fá þeir 100 þúsund krónur í vinning hver. Miðarnir voru keyptir í Olís í Garðabæ, Versluninni Vogum í Vogum, N1 við Ægisíðu í Reykjavík og einn miði var keyptur á lotto.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert