Frosti leiðir vinnu vegna fyrstu kaupa á fasteignamarkaði

Frosti Sigurjónsson.
Frosti Sigurjónsson. mbl.is/Styrmir Kári

Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra hefur skipað Frosta Sigurjónsson formann starfshóps sem útfæra á sértækar aðgerðir til að auðvelda ungu og tekjulágu fólki að kaupa sér íbúðarhúsnæði.

Í hópnum eiga einnig sæti fulltrúar frá Íbúðalánasjóði, fjármála- og efnahagsráðuneytinu og forsætisráðuneytinu.

Hópurinn er stofnaður í framhaldi af tillögu ráðherra sem samþykkt var á fundi ríkisstjórnar nýlega, að því er segir í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu.

Skoða leiðir sem hafa gefist vel í Sviss og Noregi

„Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir að ráðist verði í aðgerðir til að lækka þröskuld ungs fólks og tekjulágra inn á húsnæðismarkaðinn og endurskoða í því skyni stuðningskerfi hins opinbera þannig að stuðningurinn nýtist fyrst og fremst þessum hópum. Meðal annars verði skoðaðir möguleikar á því að nýta lífeyrissparnað til þessa.

Velferðarráðuneytið í samvinnu við Íbúðalánasjóð hefur um skeið unnið að kortlagningu ýmissa úrræða sem stjórnvöld í nágrannalöndum okkar bjóða tekjulágum á húsnæðismarkaði og hafa gefið góða raun. Hafa sjónir beinst sérstaklega að tilteknum leiðum sem farnar hafa verið í Sviss og Noregi og gefist vel,“ segir ráðuneytið. 

Ætla að láta verkin tala

Haft er eftir Ásmundi í tilkynningunni, að stjórnvöld viti vel hvar skóinn kreppi og „við vitum hverjir þurfa helst á stuðningi að halda og við höfum ágæta sýn á hvaða leiðir eru færar til að bæta stöðu ungs og tekjulágs fólks á húsnæðismarkaði. Nú þarf að láta verkin tala og hrinda aðgerðum í framkvæmd.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert