Tekjur.is eyða gagnagrunni

Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar.
Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar. mbl.is/Eggert

Forsvarsmenn vefsíðunnar Tekjur.is hafa eytt gagnagrunni síðunnar. Persónuvernd hefur fengið staðfestingu á því frá lögmanni hennar.

Forsvarsmennirnir höfðu frest til gærdagsins til að eyða gagnagrunninum og þeim upplýsingum sem þeir kynnu að hafa undir höndum.

Samkvæmt upplýsingum frá Persónuvernd hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort sekta eigi fyrirtækið Viskubrunn ehf. fyrir að gera gagnagrunn með upplýsingum úr skattskrám fyrir árið 2016 aðgengilegan á Tekjur.is.

Per­sónu­vernd hóf at­hug­un að eig­in frum­kvæði eft­ir að vefsíðan opnaði 12. októ­ber þar sem veitt­ur var aðgang­ur gegn gjaldi að upp­lýs­ing­um um tekj­ur allra ein­stak­linga á ár­inu 2016 sam­kvæmt gögn­um rík­is­skatt­stjóra. Stjórn Per­sónu­vernd­ar kvað í framhaldinu upp úrskurð þar sem kom fram að for­ráðamenn vefjar­ins hafi ekki haft heim­ild til að birta upp­lýs­ing­arn­ar og krafðist Per­sónu­vernd að síðunni yrði lokað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert