Fer í leyfi í kjölfar áminningar

Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar.
Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar. Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson

Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur ákveðið að taka sér launalaust leyfi frá þingstörfum í tvo mánuði í kjölfar þess að trúnaðarnefnd flokksins veitti honum áminningu í síðustu viku vegna framkomu hans í garð konu í miðbæ Reykjavíkur.

Þingmaðurinn greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni í kvöld og því sem leiddi til ákvörðunarinnar frá hans bæjardyrum séð. Hann hafi hitt konuna í byrjun sumars á bar sem hann kannaðist lítillega við. Þau hafi tekið tal saman og í kjölfarið farið yfir á vinnustað hennar þar sem samræðurnar hafi haldið áfram. 

Lét særandi orð falla um konuna

„Því miður hafði ég misskilið illilega á hvaða forsendum við vorum stödd þar og nálgaðist ég hana tvívegis óumbeðinn og spurði hvort við ættum að kyssast. Svar hennar var nei og hún gaf mér skýrt til kynna að það væri ekki í boði með því að banda mér frá sér. Tekið skal fram að það var algerlega mín ranga ályktun að slíkt væri í boði.“

Ágúst segist hafa brugðist við skýrri höfnun konunnar með því „að láta mjög særandi orð falla um hana. Ég er ekki stoltur af þeim orðum eða framkomu minni og vegferð almennt þetta kvöld. Ég varð mér einfaldlega til háborinnar skammar. Hún bað mig því næst að fara, sem ég og gerði.“

Konan hafi nokkru seinna haft samband við Ágúst og rætt við hann um upplifun sína af samskiptum þeirra. „Hún sagði mér að orð mín og framkoma hefðu sært hana og að þetta hafi valdið henni vanlíðan, meðal annars vegna þeirrar stöðu sem ég gegni. Ég bað hana innilega afsökunar á að hafa látið henni líða svona.“

Getur lokið málum án viðurlaga

Konan vísaði málinu til trúnaðarnefndar Samfylkingarinnar sem hægt er að sögn Ágústar að vísa málum til í trúnaði er varða áreitni, óviðeigandi framkomu eða annað slíkt af hálfu félaga í Samfylkingunni. Trúnaðarnefndin hafi þau úrræði að ljúka málum án viðurlaga. Niðurstaða nefndarinnar hafi legið fyrir í síðustu viku.

„Ég vil þess vegna skýra frá því að ég hef ákveðið að leita mér faglegrar aðstoðar vegna þessarar framkomu minnar. Ég tel einnig rétt að ganga lengra en trúnaðarnefndin leggur til og hef því óskað eftir launalausu leyfi frá þingstörfum í tvo mánuði.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert