Grunaður um líkamsárás og eignaspjöll

mbl.is/Kristinn Magnússon

Ofurölvi erlendur ferðamaður var handtekinn á hóteli í Háaleitis- og Bústaðahverfinu upp úr miðnætti í nótt. Er maðurinn grunaður um bæði líkamsárás og eignaspjöll og var því vistaður í fangageymslu lögreglu vegna rannsóknar málsins.

Þá barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um bílaþjófnað í Kópavogi um ellefuleytið í gærkvöld.

Par var svo handtekið skömmu síðar á hóteli í Reykjavík, grunað um þjófnaðinn. Var það vistað í fangageymslum lögreglu vegna rannsóknar málsins, en bílnum var skilað aftur til eiganda síns.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert