Heppinn lottóspilari á Íslandi er rúmlega 131 milljón króna ríkari eftir útdrátt í Eurojackpot-lottóinu í kvöld en hann er annar tveggja sem hlaut annan vinninginn. Hinn vinningsmiðinn var keyptur í Þýskalandi.
Þetta er stærsti vinningur sem komið hefur til Íslands samkvæmt fréttatilkynningu frá Íslenskri getspá.
Fyrsti vinningurinn gekk einnig út og kom á miða sem keyptur var í Danmörku. Sá heppni fær tæplega 4,6 milljarða króna í sinn hlut.