Fjórar bifreiðar lentu í árekstri á Kringlumýrarbraut í Reykjavík, þar sem Bústaðavegur liggur yfir hana, skömmu fyrir klukkan 18:00.
Tvær sjúkrabifreiðar voru sendar á vettvang samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og einhverjir fluttir á slysadeild.
Ekki er talið að alvarleg slys á fólki hafi orðið. Loka þurfti Kringlumýrarbrautinni að hluta um tíma til suðurs.