Heilsubótarganga um heilabúið

Bruce Dickinson er maður eigi einhamur og hefur komið víða …
Bruce Dickinson er maður eigi einhamur og hefur komið víða við um dagana. Ljósmynd/John McMurtrie

„Þetta er svolítið eins og rokk og ról útgáfa af Billy Connolly, ef þú veist hver hann er? Breskur háðfugl. Í grunninn er þetta sumsé spéspegill en byggður á mínu eigin lífi; allt frá því að ég gekk í furðulegan enskan heimavistarskóla, fór í háskóla, byrjaði að syngja í rokkböndum, tók undarleg fíkniefni – og útskýri fyrir ykkur hvað gerist við þær aðstæður, – gekk til liðs við Iron Maiden sem fljótlega varð stærsta rokkband í heimi, hætti í bandinu og gerðist atvinnuflugmaður. Sneri svo aftur og tróð upp á stríðshrjáðum svæðum og víðar. Að ekki sé talað um alla hina vitleysuna sem ég hef gert gegnum tíðina. Til að gera langa sögu stutta vona ég að þetta sé fyndin og skemmtileg kvöldstund af – í raun og veru mér. Þið fáið mig í tvo og hálfan tíma og lítist ykkur ekki á það, skuluð þið bara halda ykkur heima.“

Þetta segir Bruce Dickinson, söngvari Iron Maiden, atvinnuflugmaður, rithöfundur, frumkvöðull, bjórbruggari og skylmingaklappi með meiru, í einkaviðtali við Sunnudagsblað Morgunblaðsins en tilefnið er sýningin sem hann verður með í Hörpu sunnudagskvöldið 16. desember kl. 20.30, Hið talaða orð.  

Umboðsmaðurinn skelfur

– Hvar fékkstu þessa hugmynd?

 „Eins og svo margt annað í þessu lífi gerðist það fyrir tilviljun. Við getum líka kallað það þróun. Forleggjari minn vildi fá mig til að lesa upp í einhverjum leikhúsum til að kynna ævisögu mína sem kom út á síðasta ári [What Does This Button Do?]. Allt í lagi, sagði ég, en fannst hugmyndin þó frekar óspennandi. Þá spurðu þeir hvort ég vildi hafa mann með mér á sviðinu til að spyrja mig spjörunum úr. Það hljómaði of sviðsett fyrir minn smekk, ennþá minna spennandi. Þess vegna spurði ég hvort við gætum ekki frekar gengið út frá spuna og spjalli við áhorfendur. Á þeim tímapunkti fór umboðsmaðurinn minn að skjálfa á beinunum; hann er logandi hræddur við orðið „spuni“; óttast að allt fari í handaskolum við þær aðstæður. Sem er auðvitað hárrétt hjá honum – og þess vegna er það skemmtilegt.“ 

Hann skellir upp úr.

 „Alltént. Ég ákvað að láta vaða og þegar ég var að setja sýninguna saman studdist ég við tækni sem ég kynntist fyrir ótalmörgum árum hjá manni sem hét Quentin Crisp. Ég var í háskóla á þessum tíma, seint á áttunda áratugnum, og fór að sjá sýninguna hans með kærustunni minni. Crisp var ótrúlegur maður; mjög litríkur ríkisstarfsmaður, byltingarkenndur og hýr og varð fyrirmynd stráka á borð við Boy George. Gerð var um hann kvikmynd, Nakti ríkisstarfsmaðurinn, með John Hurt í aðalhlutverki. Í sýningunni talaði Crisp aðallega um tísku og stíl, sem ég hef ekki hundsvit á, en skemmti mér eigi að síður konunglega. Maðurinn var svo óborganlega fyndinn. Eftir að hafa látið vaða á súðum í klukkustund eða svo gerði Crisp stutt hlé á sýningunni og á meðan skrifuðu áhorfendur spurningar á spjöld sem hann fór síðan í gegnum og svaraði eftir hlé. Þetta gerði hann af mikilli snilld og ég hef aldrei gleymt þessu, þannig að þegar þessi hugmynd kom upp, að ég yrði sjálfur með eins manns sýningu, þá var ég strax ákveðinn í að byggja hana upp með svipuðum hætti. Það eru því í reynd áhorfendur sem skrifa handritið að seinni hluta sýningarinnar.“

Bruce Dickinson er mesti orkuboltinn í málmheimum og þótt víðar …
Bruce Dickinson er mesti orkuboltinn í málmheimum og þótt víðar væri leitað. Hann slær hvergi af þótt hann standi nú á sextugu. Þessi mynd er tekin á tónleikum Iron Maiden á þessu ári. Ljósmynd/John McMurtrie

Gaman og alvara

– Og hefur þeim tekist að koma þér í opna skjöldu?

„Heldur betur. Ég hef fengið margar frábærar spurningar. Í kvöld verða til dæmis átta hundruð til eitt þúsund manns í salnum hérna í Tel Aviv, þannig að ég gæti fengið allt að eitt þúsund spurningar. Eðli málsins samkvæmt get ég ekki svarað þeim öllum, þannig að ég vel þær áhugaverðustu. Sumar spurningar hafa verið svo fyndnar að nóg er að lesa þær upp og fólk springur úr hlátri.“

Þess má geta að fram að þessu hefur Dickinson troðið upp á Norðurlöndum, í Lundúnum, New York og nú síðast var hann í Ástralíu, þar sem hann fékk glimrandi dóma.

– Er fólk mest á húmorískum nótum eða spyr það um alvarlegri mál, eins og til dæmis pólitík?

„Nei, ég reyni að sneiða hjá pólitík. Nóg er nú víst vitleysan í heiminum fyrir án þess að ég fari að bæta þar við. Út af fyrir sig finnst mér líf mitt sem rokkstjörnu alveg nógu fyndið enda hef ég alltaf skoðað sjálfan mig í kaldhæðnu ljósi. Spyr fólk: Trúið þið því að þessi fábjáni fái að troða upp frammi fyrir öllu þessu fólki? Hvernig í ósköpunum getur það gerst? Út af þessu legg ég.
En öllu gamni fylgir alvara og ég vík mér ekki undan alvarlegri málum, eins og þegar ég greindist með krabbamein í hálsi um árið. Vilji fólk spyrja um þá baráttu er það velkomið; ég dreg ekkert undan og sting engu undir stól. Ég er að þessu af heilum hug; þetta er ekki kynningarherferð fyrir Iron Maiden heldur eins manns sýning byggð á lífi mínu og öllu því sem á daga mína hefur drifið, góðu og slæmu. Og ég hef upplifað eitt og annað. Ég fylgi aldrei handriti, þó ég sé með ákveðinn ramma í huga þegar ég byrja, og engar tvær sýningar eru eins. Eigum við ekki bara að kalla þetta heilsubótargöngu um heilabúið á mér? Þar sem allt getur gerst.“

Hann hlær.

Hræðsla hjálpar ekki til

– Þú nefnir krabbameinið. Breytti það sýn þinni á lífið?

„Það var sannarlega lífsreynsla að fá krabbamein og fólk spyr mig mikið um það. Það er ósköp eðlilegt; fólk er almennt hrætt við krabbamein og engan langar að sitja andspænis lækni sem segist ekki vera með góðar fréttir. Mín afstaða er sú að hvetja fólk til að láta ekki hræðsluna bera sig ofurliði enda getur það aldrei hjálpað við aðstæður sem þessar. Sjálfur notaði ég svartan húmor mikið til að koma mér gegnum þessa baráttu. Hvað á maður svo sem að gera? Þetta er ekki í manns eigin höndum. Enginn veit fyrirfram hvort meðferðin kemur til með að duga eður ei. Þetta var ekki auðveldur tími fyrir mig enda er ég óþolinmóður maður að upplagi og vil helst gera hlutina í gær. En þarna þurfti ég bara að bíða og vona. Á endanum fór þetta vel.“

Flugstjórinn Bruce Dickinson fyrir framan Ed Force One, hirðþotu Iron …
Flugstjórinn Bruce Dickinson fyrir framan Ed Force One, hirðþotu Iron Maiden, sem er í eigu Air Atlanta.

 – Þú hefur átt í góðu sambandi við Ísland undanfarinn hálfan annan áratug eða svo, flaugst meðal annars fyrir Iceland Express og leigðir flugvél af Air Atlanta, Ed Force One, fyrir tónleikaferð Iron Maiden. Lagðirðu áherslu á að koma með sýninguna hingað?

„Já, mig langaði að koma til Íslands. Að hluta til vegna þess að ég hef ekki komist þangað nógu oft seinustu árin. Ég var mikið á Íslandi þegar ég starfaði fyrir Iceland Express. Seinast kom ég þangað til að semja við Magnús [Ásgeirsson], sölustjóra Air Atlanta, um leiguna á vélinni, þannig að þetta er orðinn alltof langur tími. Nei, fyrirgefðu, nú skrökva ég að þér. Það er styttra síðan ég kom. Ég átti lítið flugfélag í tvö ár eða svo og við vorum kallaðir upp eftir tímabundið þegar WOW var að stækka og bjó ekki að nægilega mörgum flugmönnum. Ég flaug nokkrar ferðir til Kaupmannahafnar fyrir þá. Og drap enn og aftur niður fæti á írska barnum í Keflavík vegna þess að flugvélin okkar bilaði þegar við vorum að fara heim. Við þurftum að bíða í tvo daga eftir varahlutum.

Ég er mjög hrifinn af Íslandi og langar við tækifæri að skoða landið á dýptina; ekki bara Reykjavík og hverina. Ég hef líka unnið fyrir marga Íslendinga gegnum tíðina. Toppfólk, allir sem einn.“

Þið hafið ömurlegan húmor!

– Sumir segja að við höfum svipaðan húmor, Íslendingar og Bretar. Er það þín upplifun?
„Hvað áttu við? Þið hafið ömurlegan húmor,“ fullyrðir Bruce og hlær með bakföllum. Nær svo andanum á ný og bætir við: „Nei, nei. Bara að grínast. Svarið er vitaskuld já.“

Viðtalið í heild má lesa í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins. 

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert