Ákærður fyrir nauðgun

Málið var þingfest í Héraðsdómi Norðurlands eystra í gær.
Málið var þingfest í Héraðsdómi Norðurlands eystra í gær. mbl.is/Skapti

Embætti héraðssaksóknara hefur ákært karlmann fyrir nauðgun í september í fyrra. Maðurinn er samkvæmt ákæru sagður hafa haft samræði og önnur kynferðismök við konuna án hennar samþykkis.

Var konan sofandi þegar maðurinn hóf að nauðga henni, en vaknaði við háttsemina. Fram kemur í ákærunni að hún hafi ekki þorað að bregðast við auk þess að hafa ekki getað spornað við verknaðinum þar sem hún var sofandi og sökum svefndrunga og ölvunar.

Farið er fram á að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar og þá fer konan fram á að maðurinn greiði henni 1,8 milljónir í miskabætur.

Málið var þingfest í Héraðsdómi Norðurlands eystra í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert