Stærstu uppsagnir í tæp 10 ár

Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar.
Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar. mbl.is/Arnþór Birkisson

Uppsagnir starfsfólks í tengslum við WOW air eru þær fjölmennustu sem hafa komið á borð Vinnumálastofnunar í tæp tíu ár, segir Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar. 

Greint var frá því í morgun að WOW hefði sagt upp 111 fastráðnum starfsmönnum og ná uppsagnirnar þvert á fyrirtækið. 237 starfs­mönn­um Airport Associa­tes, þjón­ustuaðila WOW air á Kefla­vík­ur­flug­velli, var sagt upp í lok nóvember og á ann­an tug var sagt upp hjá WOW air um svipað leyti þegar ljóst var að ekki yrði af sameiningu félagsins og Icelandair.

Gissur segir að hjá Vinnumálastofnun verði farið í að undirbúa möguleikann á að þeir, sem hefur verið sagt upp, nýti sér rétt til atvinnuleysisbóta og ráðgjafar í tengslum við atvinnumissi. Töluverð vinna sé við að skipuleggja slíkt þegar um svo mikinn fjölda fólks er að ræða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert