Þrír á sjúkrahús eftir árekstur

mbl.is/Eggert

Þrír voru fluttir á bráðamóttöku Landspítalans eftir harðan árekstur á mótum Kalkofnsvegar og Sæbrautar á ellefta tímanum í morgun. Mikið álag hefur verið á sjúkraflutningafólk í morgun og nú rétt undir hádegi voru sjúkraflutningarnir orðnir 32 talsins frá því klukkan 7:30.

Ekið var á gangandi vegfaranda við gatnamót Breiðhöfða og Bíldshöfða upp úr klukkan átta í morgun og var hann fluttur á sjúkrahús með sjúkrabíl.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu valt vörubíll í Kópavogi í morgun en ekki urðu slys á fólki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert