Jólaverslun fyrr á ferðinni

Verslanir auglýsa tilboð og afslætti á óvenjulegum tíma .
Verslanir auglýsa tilboð og afslætti á óvenjulegum tíma . mbl.is/​Hari

„Almennt er mjög gott hljóð í fólki enda gengur vel í verslun þegar kaupmáttur er sterkur. Ég get hins vegar ekki svarað því hvernig ástandið er í hverri verslun fyrir sig,“ segir Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu.

Athygli hefur vakið að margar stórar verslanir auglýsa afslætti og tilboð um þessar mundir. Það hefur alla jafna ekki tíðkast þegar jólaverslunin á að vera í hámarki og landsmenn keppast við að strauja kreditkortin.

Þannig mátti í Morgunblaðinu í gær til að mynda sjá auglýsingu frá Pennanum/Eymundsson þar sem svokallað skattfrí var boðað um helgina og leikfangaverslunin Toys R Us auglýsti 25% aflátt af flestum vörum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert