Situr einn að 40 milljónunum

Einn spil­ari var með all­ar töl­urn­ar rétt­ar í Lottóleik kvöldsins og fær hann rúma 41 milljón króna, en vinningsmiðinn var keyptur í Fjarðarkaupum í Hafnarfirði.

Tveir deila síðan með sér  bónus­vinn­ing­inum og fá þeir hvor 324 þúsund í sinn hlut. Annar miðinn er í áskrif, en hinn var keyptur á lotto.is.

Eng­inn var með fimm rétta í Jókern­um, en sjö fengu fjór­ar töl­ur rétt­ar og fær hver og einn þeirra 100 þúsund krón­ur.

Töl­ur kvölds­ins voru: 14, 16, 18, 37, 38

Bón­ustal­an var: 5

Jóker­töl­urn­ar voru: 2, 5, 6, 4, 2

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert