Unnið að mótun menntastefnu

Frá fundi í sveitarfélaginu Árborg.
Frá fundi í sveitarfélaginu Árborg. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Um 1.800 þátttakendur tóku þátt í fundaröð um mótun menntastefnu til ársins 2030. Alls voru haldnir 23 fræðslu- og umræðufundir út um allt land. Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra sótti marga fundina og þar fór yfir sýn og áherslur er koma að mótun nýrrar menntastefnu.

Haldnir voru tveir fundir á hverjum stað og var sá fyrri með forsvarsmönnum sveitarfélags og ábyrgðaraðilum málaflokka mennta-, félags- og heilbrigðismála ásamt fulltrúum frá Kennarasambandi Íslands, Skólameistarafélagi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Menntamálastofnun, samtökunum Heimili & skóli, kennaramenntunarstofnunum og aðilum úr stýrihópi um eftirfylgni úttektar menntastefnunnar menntun fyrir alla, að því er fram kemur á vef Stjórnarráðsins. 

Lilja kveðst vera þakklát þeim fjölmörgu sem lögðu hönd á plóg og miðluðu af þekkingu sinni og reynslu. Hún muni nýtast vel í næstu skrefum við mótun nýrrar stefnu. 

Rætt um skort á fagmenntuðu fólki og mikilvægi aukins stuðnings

Þá kemur fram, að fundarmönnum hafi verið tíðrætt um mikilvægi samstarfs kerfa á báðum stjórnsýslustigum. Á mörgum stöðum hafi komið fram góð lýsing á formlegu samstarfi mennta- og félagskerfis og heilsugæslu.

„Umræða um skort á fagmenntuðu fólki var víða áberandi og einnig mikilvægi aukins stuðnings við starfsfólk. Starfsþróun kennara og skólastjóra var einnig til umræðu svo og hlutverk og þjónusta háskóla við landsbyggðina. Af einstökum áskorunum í menntamálum má fullyrða að áhyggjur vegna þjónustu við börn og ungmenni af erlendum uppruna hafi verið mest áberandi. Fulltrúar sveitarfélaga lýstu margir yfir ákveðnu úrræðaleysi þegar kemur að skipulagi þjónustu við þá nemendur sem til dæmis tengist skorti á þekkingu og hæfni til að mæta þörfum þeirra,“ segir á vef Stjórnarráðsins. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert