Aðgangur að dvalar- og hjúkrunarrýmum verður óháður aldri

Ekki er lengur horft til aldurs heldur byggt á mati …
Ekki er lengur horft til aldurs heldur byggt á mati á þörf fólks fyrir þessi úrræði. mbl.is/​Hari

Alþingi hefur samþykkt frumvarp heilbrigðisráðherra til breytinga á lögum sem lagt var fram í því skyni að jafna aðgang þeirra sem þurfa á dvalarrými eða dagdvöl að halda, þannig að ekki sé lengur horft til aldurs heldur byggt á mati á þörf fólks fyrir þessi úrræði. Lögin öðlast þegar gildi.

Fram kemur á vef velferðarráðuneytisins, að í lagabreytingunni felist að heimilt verði að samþykkja umsóknir um dvöl í dvalarrýmum og dagdvalarrýmum fyrir fólk sem er yngra en 67 ára ef fyrir liggi mat á þörf viðkomandi fyrir þessi úrræði.

Heimild sem þessi er þegar fyrir hendi vegna þeirra sem eru yngri en 67 ára en hafa verið metnir í þörf fyrir hjúkrunarrými.

Nánar á vef Stjórnarráðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert