Loka gömlu Hringbraut í sex ár

Strætó.
Strætó. mbl.is/Hanna Andrésdóttir

Á fundi stjórnar Strætó bs. 7. desember var samþykkt að breyta gjaldskrá Strætó í takt við almenna verðlagsþróun. Gjaldskrá Strætó verður hækkuð að meðaltali um 3,9%. Í janúar 2019 mun hluti gömlu Hringbrautar loka í sex ár vegna framkvæmda á nýjum Landspítala. Lokunin mun hafa nokkur áhrif á leiðakerfi Strætó.

Almennt staðgreiðslugjald og stakt fargjald í appinu verður 470 krónur eftir breytingu.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá Strætó en almennt staðgreiðslugjald og stakt fargjald í appinu er nú 460 krónur.

Í eigendastefnu Strætó sem samþykkt var í apríl 2013 kemur fram að stefnt skuli að því að fargjaldatekjur standi undir allt að 40% af almennum rekstrarkostnaði Strætó. Í dag standa fargjaldatekjur undir rúmlega 30% af almennum rekstrarkostnaði félagsins.

Leiðir 1, 3 og 6 munu nota nýjan veg á gatnamótum gömlu Hringbrautar og Barónsstígs og aka í staðinn inn á Hringbraut. Þetta á við báðar áttir, til og frá Hlemmi. Biðstöðvarnar Landspítalinn og BSÍ sameinast í biðstöðina BSÍ/Landspítalinn.

Leiðir 1, 3 og 6 eftir lokun Gömlu-Hringbrautar.
Leiðir 1, 3 og 6 eftir lokun Gömlu-Hringbrautar. Ljósmynd/Strætó

Leiðir 5 og 15 munu aka nýja leið til þess að komast milli gömlu Hringbrautar og Snorrabrautar. Á leið vestur munu vagnarnir aka frá Hlemmi, inn á Snorrabraut og beygja inn Egilsgötu og Barónsstíg á leið sinni að gömlu Hringbraut. Nýjar biðstöðvar á leið vestur í átt frá Hlemm eru: Egilsgata/Barónsstígur, Barónsstígur/Landspítalinn og BSÍ/Landspítalinn.

Leiðir 5 og 15 eftir lokun Gömlu-Hringbrautar.
Leiðir 5 og 15 eftir lokun Gömlu-Hringbrautar. Ljósmynd/Strætó

Á leið austur munu leiðirnar beygja inn á Barónsstíg og aka niður Bergþórugötu og inn á Snorrabraut á leið sinni á Hlemm. Nýjar biðstöðvar á leið austur í átt að Hlemm eru: BSÍ/Landspítalinn, Barónsstígur/Landspítalinn og Barónsstígur/Egilsgata.

Leið 3 mun aka Kalkofnsveg og Sæbraut

Í stað þess að aka Hverfisgötu mun leið 3 aka um Kalkofnsveg og Sæbraut til og frá Hlemmi. Verður þetta í fyrsta sinn í tæp tvö ár sem Strætó stoppar við Hörpu, en í mars árið 2017 færðust sex strætóleiðir inn á Hverfisgötu vegna framkvæmda á gatnamótum Lækjargötu og Kalkofnsvegar.

Nýjar biðstöðvar á leið 3 verða Arnarhóll/Lækjartorg, Harpa, Sæbraut/Vitastígur  og Sæbraut/Frakkastígur. Allar biðstöðvar á Hverfisgötu detta út á leið 3.

Leið 14 styttist

Á annatímum síðdegis lendir leið 14 gjarnan í miklum umferðartöfum og vögnunum gengur illa að halda áætlun. Sumarið 2017 var einum vagni og auka tíma bætt við leiðina í þeirri von að seinkanir myndu minnka. Sú breyting lagaði ástandið aðeins lítillega og meira þurfti til.

Í stað þess að leiðin aki um Lækjargötu og Hringbraut til og frá Hlemmi munu vagnarnir aka um Hverfisgötu til og frá Hlemmi. Strætó telur að þessi breyting muni auka áreiðanleika leiðar 14.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert