Tvær bifreiðar skullu saman

mbl.is/Hjörtur

Tvær fólksbifreiðar skullu saman á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Sæbrautar í Reykjavík skömmu fyrir klukkan átta í kvöld.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins voru þrjár sjúkrabifreiðar og tækjabifreið send á staðinn þar sem málið leit ekki vel út en þegar til kastanna kom hafi ekki þurft að flytja neinn á slysadeild.

Slökkviliðið hvetur ökumenn og aðra vegfarendur til þess að fara varlega í jólaösinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert