Grýtti bifreið í miðborginni

mbl.is/Kristinn Magnússon

Lögreglan handtók mann í annarlegu ástandi í hverfi 101 í gærkvöldi en hann er grunaður um að hafa grýtt bifreið. Maðurinn var ákaflega ósamvinnuþýður við lögreglu, fór ekki að fyrirmælum hennar og neitaði af gefa upp nafn eða kennitölu. Hann er vistaður í fangageymslum lögreglu. 

Tilkynnt var um umferðaróhapp í Kópavogi á níunda tímanum í gærkvöldi. Ökumaðurinn sem olli óhappinu er grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum lyfja. Ekki var tilkynnt um slys á fólki.

Tveir ökumenn voru stöðvaðir í hverfi 109 í nótt og eru þeir báðir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Annar þeirra var með fíkniefni á sér og hinn hefur ítrekaður verið stöðvaður fyrir akstur bifreiðar án þess að vera með réttindi til þess.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert