Stóð framar þeim sem ráðinn var

„Það er óásættanlegt að sérfræðilæknar geti ekki vænst þess að umsóknir þeirra fái faglega umfjöllun óháðra aðila við ráðningar að Landspítala háskólasjúkrahúsi. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem sérfræðilæknar hafa rekið sig á svipaðar niðurstöður, þó ekki hafi komið til kæru.“

Þetta er meðal þess sem kemur fram í bréfi undirrituðu af 240 læknum sem sent hefur verið til Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra í kjölfar úrskurðar kærunefndar jafnréttismála 19. september 2018 þar sem gerðar eru athugasemdir við vinnulag við ráðningaferla sérfræðilækna á Landspítalanum. Fjallað er um málið á vef Læknafélags Íslands í dag.

Málið snýst um ráðningu í stöðu sérfræðings í meltingarlækningum. Tvær umsóknir hafi borist sem fjallað hafi verið um af stöðunefnd læknaráðs Landspítalans og hafi töluverður munur verið á starfsreynslu umsækjendanna sem staðfest sé í úrskurðinum.

Þar segi að sá sem ekki hafi fengið stöðuna og kært ráðninguna hafi staðið mun framar þeim sem ráðinn hefði verið „hvað varðar alla þá þætti er áskildir voru í auglýsingu og fyrir liggur að sá er ráðinn var uppfyllti ekki öll skilyrði auglýsingar er umsóknarfrestur rann út.”

Fram kemur í bréfinu að úrskurður kærunefndarinnar hafi „verulega skaðleg áhrif á ímynd Landspítala sem háskólasjúkrahúss og mun hafa áhrif á áhuga lækna til að sækja um störf hér á landi. Við krefjumst úrbóta nú þegar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert