Fordæmir ummæli fjármálaráðherra

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, forseti ASÍ. mbl.is/Valli

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) hefur sent frá sér ályktun þar sem fordæmt er að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra velji „að beita hótunum í stað lausna“ verði samið um kjarabætur fyrir verkafólks sem verði honum ekki að skapi. Er þar vísað í þau ummæli Bjarna í Morgunblaðinu í dag að áform um lækkun tekjuskatts verði endurskoðuð verði samið um óábyrgar launahækkanir í komandi kjarasamningum.

„Miðstjórn ASÍ bendir á að stjórnvöld séu því miður lítið að gera til að létta róðurinn í kjarasamningaviðræðunum sem nú standa yfir. Tillögur í skatta- og húsnæðismálum hafa enn ekki komið fram, en brýn þörf er á róttækum tillögum sem raunverulega skipta sköpum fyrir almenning. Því miður er það svo að forgangsröðun stjórnvalda felst í lækkun veiðigjalda á útgerðina, lögfestingu síðasta dóm kjararáðs sem veitti kjörnum fulltrúum ríflegar launahækkanir ásamt því að veita fjármálafyrirtækjum ríflegar skattalækkanir.“

Jólakveðjur ríkisstjórnarinnar til vinnandi fólks væru þannig nöturlegar og ekki til þess fallnar að skapa sátt á vinnumarkaði eða auðvelda gerð nýrra kjarasamninga. „Miðstjórn ASÍ skorar á fjármálráðherra og ríkisstjórn að hraða allri vinnu er lýtur að kröfum verkalýðshreyfingarinnar í komandi kjaraviðræðum og hvetur Bjarna Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra til að vinna að lausnum og sátt í skattamálum frekar en beita vinnandi fólk hótunum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert