Komugjöld öryrkja og aldraða felld niður

Komugjöld öryrkja og aldraðra í heilsugæslu verða felld niður frá …
Komugjöld öryrkja og aldraðra í heilsugæslu verða felld niður frá byrjun næsta árs. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Hætt verður að innheimta komugjöld af öryrkjum og öldruðum í heilsugæslu og hjá heimilislæknum frá 1. janúar næstkomandi. Gildir það hvort sem um er að ræða komu á dagvinnutíma eða á öðrum tíma sólarhringsins samkvæmt ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra.

Gjald fyrir vitjanir lækna til aldraðra og öryrkja verður einnig fellt niður. Líkt og áður verða ekki innheimt komugjöld hjá börnum að 18 ára aldri.

„Þetta er mikilvæg aðgerð og liður í stefnu stjórnvalda um að draga úr greiðsluþátttöku sjúklinga vegna heilbrigðisþjónustu og auka á móti framlög hins opinbera. Þetta er einnig í samræmi við þá áherslu að efla hlutverk heilsugæslunnar sem fyrsta viðkomustaðar fólks í heilbrigðiskerfinu“ er haft eftir Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra í tilkynningu frá Velferðarráðuneytinu.

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra. Ljósmynd/Bragi Þór Jósefsson

Komur öryrkja í heilsugæsluna eru um 55.000 og komur aldraðra um 107.500 á ársgrundvelli miðað við tólf mánaða tímabil frá miðju ári 2017 til 2018.

Með nýju greiðsluþáttökukerfi sem sett var árið 2017 var sett þak á heildarútgjöld sjúklinga og ýmsar aðrar breytingar gerðar varðandi greiðsluþátttöku fólks fyrir heilbrigðisþjónustu. Sú breyting hefur lækkað verulega útgjöld þeirra sem mest þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda og stuðlað að auknum jöfnuði meðal notenda heilbrigðiskerfisins, segir í tilkynningunni.

Þar kemur einnig fram að heildarútgjöld sjúklinga í nýja greiðsluþáttökukerfinu séu um 1,5 milljörðum krónum lægri á ársgrundvelli en þau voru áður og muni lækka enn frekar með niðurfellingu komugjalda öryrkja og aldraðra.

Komugjald almennra notenda í heilsugæslunni verða óbreytt að krónutölu á nýju ári og taka því ekki hækkunum í samræmi við breyttar verðlagsforsendur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert