Nýr vefur um loftgæði tekinn í notkun

Loftgæði á landinu voru víðast hvar með besta móti síðdegis.
Loftgæði á landinu voru víðast hvar með besta móti síðdegis. Kort/Loftgæði.is

Ný heimasíða sem miðlar upplýsingum um loftgæði var tekin í notkun í dag. Umhverfisstofnun á heiðurinn af síðunni, loftgæði.is, „og já, það má nota íslenska stafi í slóðina!“ segir í tilkynningu frá stofnuninni.

Nýja síðan er mun notendavænni en sú eldri og er helsti munurinn að strax á upphafssíðunni fæst yfirlit um loftgæði á öllum mælistöðvum á landinu. „Litakóði er notaður til að sýna ástand loftgæða á hverri mælistöð þannig að almenningur á auðveldara með að átta sig á stöðunni. Styrkur mengunarefna á hverri stöð ræður litnum á viðkomandi stöð á Íslandskortinu. Notendur geta svo með einföldum hætti skoðað nánar mæligildin fyrir viðkomandi stöð,“ segir í frétt á heimasíðu Umhverfisstofnunar.

Gögnum um loftgæði á Íslandi er jafnframt miðlað á evrópska loftgæðavefinn  þar sem má sjá stöðu loftgæða á Íslandi í samanburði við önnur lönd í Evrópu.

Opnun  síðunnar er fyrsta skrefið í að miðla upplýsingum úr nýju loftgæðaupplýsingakerfi (Airviro) sem starfsfólk Umhverfisstofnunar hefur unnið að uppsetningu á síðasta árið.

Hægt að fylgjast með styrki loftmengunarefna í borginni

Á næstu mánuðum munu bætast við fleiri valmöguleikar á síðuna og ber þá helst að nefna dreifilíkan loftmengunarefna á völdum svæðum á landinu. „Dreifilíkanið reiknar út styrk loftmengunar hverju sinni út frá gagnagrunni um losun loftmengunarefna og veðuraðstæðum hverju sinni. Upplýsingar um styrk loftmengunarefna í mælistöðvum segja í raun aðeins til um stöðu loftgæða á þeim punkti þar sem mælistöðin er staðsett en með dreifilíkani verður hægt að sjá hvernig loftmengun dreifist undan vindi,“ segir í frétt Umhverfisstofnunar.  

Þannig verður hægt að sjá mismunandi styrk loftmengunar á öllu því svæði sem dreifilíkanið sýnir. Til dæmis verður hægt að sjá gróflega hver styrkur loftmengunarefna er á öllu höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert