Sprengdur í tveimur hlutum

Undirbúningur er hafinn við niðurrif strompsins eins og sjá má …
Undirbúningur er hafinn við niðurrif strompsins eins og sjá má á þessari mynd sem var tekin í dag. Ljósmynd/Lúðvík Þorsteinsson

Akraneskaupstaður skrifaði í dag undir samning við fyrirtækið Work North um niðurrif á Sementsstrompinum og hljóðar hann upp á 26 milljónir króna. Strompurinn verður sprengdur niður í tveimur hlutum. 

Sérfræðingar frá dönsku verkfræðifyrirtæki hafa veitt ráðgjöf við niðurrifið. 

Að sögn Sævars Freys Þráinssonar, bæjarstjóra Akraness, verður strompurinn tekinn niður einhvern tímann á fyrstu sex vikum nýs árs.

„Þegar þar að kemur munum við auglýsa það vel,“ segir Sævar Freyr og nefnir að ákveðin hús sem eru staðsett alveg við strompinn verða rýmd í öryggisskyni. Miðað er við hús í 30 metra radíus og verða þrjú til fjögur hús rýmd. 

Work North hóf í dag undirbúning vegna niðurrifsins eftir að samningurinn hafði verið undirritaður. Fyrirtækið hefur einnig annast niðurrif Sementsverksmiðjunnar og að sögn Sævars Freys hefur verkefnið gengið vel. Aðeins er lokafrágangur eftir.

Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri Akraness.
Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri Akraness. mbl.is/Sigurður Bogi
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert