Biðla til sveitarstjórnar Reykhólahrepps

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar biðlar til sveitarstjórnar í Reykhólahreppi að taka tilli …
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar biðlar til sveitarstjórnar í Reykhólahreppi að taka tilli til hagsmuna íbúa og fyrirtækja utan Reykhólahrepps við ákvörðun í vegamálum. Sigurður Bogi Sævarsson

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar biðlar til íbúa og sveitarstjórnar Reykhólahrepps að „vinna áfram með öðrum Vestfirðingum“ við að ljúka endurnýjun Vestfjarðavegar um Reykhólahrepp sem allra fyrst og „leysa þannig eina stærstu hindrunina í samgöngum á Vestfjörðum.“ Þetta kemur fram í tilkynningu bæjaryfirvalda sem ber titilinn „Ákall til íbúa Reykhólahrepps“.

Í ákallinu segir að samgöngur um Vestfirði hafi lengi verið íbúum og fyrirtækjum erfiðar, en á síðustu árum hafi mikil vinna verið lögð í endurbætur á Vestfjarðarvegi. 

„Í fjölda ára hefur algjör sátt og einhugur ríkt meðal sveitarstjórna á Vestfjörðum um að lögð skuli áhersla á láglendisveg um Gufudalssveit, til að stytta ferðatíma og tryggja samgöngur árið um kring, og hefur samkvæmt því verið unnið að leið Þ-H. Núna þegar sveitarstjórn Reykhólahrepps virðist ætla að fara aðrar leiðir en áður hefur verið unnið að, fyllumst við eins og aðrir Vestfirðingar ótta um að þessi framkvæmd sigli á ný í strand og aftur verði málinu frestað,“ ritar bæjarstjórnin.

Stór ákvörðun framundan

„Framundan er stór ákvörðun sem sveitarstjórn Reykhólahrepps þarf að taka og er þess vænst að við þá ákvörðun verði jafnframt tekið tillit til hagsmuna íbúa og fyrirtækja utan Reykhólahrepps. Það skiptir alla Vestfirðinga gríðarlegu máli að hægt sé að hefja úrbætur á Vestfjarðavegi sem allra fyrst, því 60 ára gamlir þjóðvegir eru á engan hátt boðlegir í nútíma samfélagi.“

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar segir ábyrgð löggjafans á þessari „pattstöðu sem verið hefur“ mikla og að hlutskipti sveitarstjórnarmanna í Reykhólahreppi í því samhengi hreint ekki öfundsvert. „Því er eðlileg krafa að bæði löggjafarvald og framkvæmdavald verði tilbúið að koma að lausn málsins. er því hér jafnframt óskað eftir stuðningi stjórnvalda til að tryggja þessum brýnu samgöngu bótum brautargengi og sjá til þess að vegagerð um Þ-H leið á Vestfjarðavegi verði að veruleika sem allra fyrst,“ segir í ákalli bæjarstjórnarinnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert