Bílvelta á Reykjanesbraut

Þrír voru fluttir á slysadeild eftir að bíll fór út af veginum á Reykjanesbraut, skammt frá álverinu í Straumsvík, rétt eftir klukkan níu í kvöld. Ekki er talið að meiðsli hinna slösuðu séu alvarleg.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu er ekki vitað um tildrög slyssins en ekki var um árekstur að ræða. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert