Aðkoman að slysinu „hræðileg“

Frá slysstaðnum.
Frá slysstaðnum. Ljósmynd/Aðsend

Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri heilbrigðisstofnunar Suðurlands, segir að aðkoman að slysinu við Núpsvötn hafi verið hræðileg og að aðstæður á vettvangi hafi verið afar erfiðar. Verulega tók á alla björgunaraðila að sjá hversu illa fólkið var slasað.

Lögreglumaður frá Kirkjubæjarklaustri var fyrstur á vettvang og rétt á eftir kom hjúkrunarfræðingur frá heilsugæslustöðinni á Kirkjubæjarklaustri. Eftir það komu allir tiltækir sjúkraflutningamenn frá heilbrigðisstofnun Suðurlands á Kirkjubæjarklaustri á vettvang.

„Fáliðað var um tíma á vettvangi en fljótlega bættist í bjargir á slysstað þegar bættist í hóp lögreglumanna, heilbrigðisstarfsmanna, sjúkraflutningamanna og björgunarsveitarfólks ásamt slökkviliði með tækjabúnað. Tveir voru fyrir utan bíl þegar komið var að slysstað og fljótlega náðist að losa tvo einstaklinga til viðbótar úr bílnum, en einn þeirra var látinn. Aðrir farþegar í jeppanum vorum rígfastir og mjög illa slasaðir inni í bílnum,“ skrifar Herdís í greinargerð sem hún sendi fjölmiðlum.

Sjúkraflutningamenn, hjúkrunarfræðingar og læknar komu á vettvang frá Vík í Mýrdal, Höfn í Hornafirði og frá Hvolsvelli og sjúkraflutningamenn frá heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi komu með í þyrlu Landhelgisgæslunnar. Bjarki Vilhjálmur Guðnason sjúkraflutningamaður hjá HSU á Kirkjubæjarklaustri var aðhlynningarstjóri á vettvangi og Þorsteinn Kristinsson lögreglumaður vettvangsstjóri.

Að sögn Herdísar tók töluverðan tíma að koma búnaði að slysavettvangi, samkvæmt lögreglunni, vegna árbakkanna. Umtalsverðan tíma tók að ná þeim fjórum sem voru alvarlega slasaðir út úr jeppanum, sem var mjög illa farinn.

„Meðal þeirra sem flutt voru á Landspítala voru bæði börn og fullorðnir.  Þau voru með áverka á kvið, höfði og stoðkerfi. Þrír létust í slysinu og er eitt barn þeirra á meðal. Tveir karlmenn og tvö börn voru flutt með þyrlu á Landspítala,“ skrifar hún.

Herdís minnist þess að fyrir réttu ári síðan, á þriðja degi jóla, hafi orðið alvarlegt rútuslys í heilbrigðisumdæmi Suðurlands í Eldhrauni vestan við Kirkjubæjarklaustur.

„Enn á ný kemur í ljós hve gott og faglegt samstarf milli heilbrigðisstarfsmanna og sjúkraflutninga HSU, lögreglu og björgunarsveita á Suðurlandi skilar framúrskarandi björgunarstarfi við afar erfiðar aðstæður. Ljóst er að aðkoman að slysinu við brúna yfir Núpsvötn var afar erfið. Verulega tók á alla hlutaðeigandi björgunaraðila að sjá hversu illa fólkið var slasað. Viðrunarfundur, með aðkomu sálfræðings, verður haldinn í dag á Vík í Mýrdal með þeim aðilum sem komu hinum slösuðu til bjargar. Nauðsynlegt er að skoða hvernig má styrkja bjargir á þessu svæði með sívaxandi umferð ferðamanna og fara yfir búnað og bjargir á fjölsóttasta ferðamannasvæði á Íslandi.

Þess má geta að samhliða þessu erfiða útkalli vegna slyssins voru fjögur önnur erfið bráðaútköll hjá sjúkraflutningum á sama tíma í umdæmi Suðurlands í dag.  Því má lítið út af bregða til að mikið álag skapist hjá viðbragðsaðilum í framlínunni hjá heilbrigðisstofnun Suðurlands.

Öllum hlutaðeigandi eru færðar þakkir fyrir fumlaus og fagleg vinnubrögð,“ skrifar hún.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert