Framlengja gæsluvarðhald vegna brunans

Héraðsdómur Suðurlands samþykkti í dag á kröfu lögreglustjórans á Suðurlandi um að framlengja gæsluvarðhald yfir manninum sem grunaður er um að hafa valdið eldsvoðanum á Selfossi sem varð tveimur að bana, segir Grímur Hergeirsson saksóknari í samtali við mbl.is.

Samkvæmt úrskurði dómstólsins verður maðurinn í gæsluvarðhaldi til 24. janúar klukkan 16. Grímur segir ekki liggja fyrir hvort maðurinn áfrýji úrskurðinum til Landsréttar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert