Bíða þess að ná tali af bræðrunum

Farþegar bifreiðarinnar voru fluttir slasaðir á slysadeild Landspítalans í Fossvogi.
Farþegar bifreiðarinnar voru fluttir slasaðir á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. mbl.is/Árni Sæberg

Lögreglan á Suðurlandi bíður þess að ná tali af bræðrunum sem voru í bifreiðinni sem fór fram af brúnni við Núpsvötn í gær. Í bílnum voru bræðurnir tveir, eiginkonur þeirra og þrjú börn. Konurnar tvær létu lífið og ellefu mánaða ungabarn.

Í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins kom fram að mennirnir tveir hafi verið of þungt haldnir í dag til þess að lögregla gæti tekið af þeim skýrslu. Annað barnanna tveggja sem lifðu slysið af er alvarlega slasað og annar bróðirinn hlaut beinbrot og höfuðáverka.

Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, vildi ekki tjá sig um líðan fólksins í samtali við mbl.is að öðru leyti en að bræðurnir hafi ekki verið til viðtals í dag.

Núpsvatnabrú.
Núpsvatnabrú. mbl.is/Sigurður Gunnarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert