Deilt um stöðu borgarstjóra

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. mbl.is/​Hari

Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, segir það eðlilegt að Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sitji í þriggja manna hópi sem skipaður er til að rýna í niðurstöður skýrslu innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar um braggamálið svonefnda.

„Mér finnst það eðlilegt því hann er æðsti yfirmaður stjórnsýslunnar og æðsti yfirmaður borgarinnar og á meðan hann er það þá hlýtur hann að njóta einhvers trausts til að fara í saumana á því sem betur má fara innan stjórnsýslunnar. Þannig að að svo stöddu finnst mér ekkert að því að hann taki sæti í þessum hópi,“ segir Líf.

Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, fór fram á að Dagur myndi víkja úr hópnum. Mun Hildur sjálf gefa sæti sitt laust verði ekki fallist á þessa kröfu. „Ef hann [Dagur] nýtur ekki trausts Hildar Björnsdóttur þá er það allt annað mál. Það er bara eðli pólitíkurinnar. Þannig að ég sé ekki að ég ætti að hafa einhverja sérstaka skoðun á þessum tímapunkti á hvort hann njóti trausts til að skila af sér einhverri skoðun á hvernig stjórnsýslan gæti unnið betur, hvernig verkferlar ættu að vera, hvort upplýsingar væru gefnar til nefnda og ráða og með hvaða hætti og hvernig embættismenn ættu að fara að í aðstæðum sem þessum svo þetta endurtæki sig ekki,“ segir Líf, sem sakar jafnframt Hildi um að setja upp pólitískt leikrit.

„Hún er að setja upp pólitískt leikrit og það þarf auðvitað innistæðu fyrir því en á meðan ekkert annað hefur komið upp þá þarf þetta eðlilega að hafa sinn gang þar sem framkvæmdastjóri borgarinnar tekur á þessum málum og hvernig betur megi gera í framtíðinni.“ 

Algjörlega ófært

Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, er hins vegar á öðru máli og segir það fásinnu að Dagur skoði sjálfan sig.

„Ég tel að það sé algjör fásinna og algjörlega ófært ef þessi hópur kemst á laggirnar að Dagur sitji í því að skoða sjálfan sig og viðbrögð við sínum eigin afglöpum sem koma fram í skýrslunni. Þetta er merki um algjöra blindu á eigin verk. Ég hef gagnrýnt það frá byrjun og skipun þessa hóps. Það er talað um að þetta sé hópur minni- og meirihluta en þetta var tilkynnt einhliða á fundi borgarráðs án þess að nokkur vissi.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert