Svifryksmengun líklega yfir mörkum

Svifryk frá flugeldum getur verið hættulegt.
Svifryk frá flugeldum getur verið hættulegt. mbl.is/​Hari

Búist er við svifryksmengun fyrstu klukkustundir ársins 2019 vegna mengunar frá flugeldum. Styrkur svifryks var hár nær allan sólarhringinn 1. janúar 2018 en venjulega fellur styrkurinn hratt þegar líða tekur á nýársnótt.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Þar eru borgarbúar hvattir til að sýna aðgát og huga að börnum ásamt því að ganga rétt frá flugeldarusli.

„Hægt er að draga úr fjölda flugelda með því að kaupa rótarskot Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Rótarskotið er góður valkostur fyrir þá sem vilja styrkja starf björgunarsveitanna án þess að kaupa flugelda. Fyrir hvert rótarskot gróðursetur skógræktarfélagið trjáplöntu í nágrenni Þorlákshafnar næsta sumar en tré bæta loftgæði og draga úr gróðurhúsaáhrifum,“ segir í tilkynningunni.

„Hávaði vegna flugelda verður oft mikill, sérstaklega frá stórum skotkökum og eru borgarbúar því hvattir til að huga vel að gæludýrum sínum. Best er að halda köttum inni dagana í kringum áramót og hafa hunda ávallt í ól þegar þeim er hleypt út, þótt þeir fari aðeins út í garð.“

Spáð er norðanátt, léttskýjuðu veðri og köldu á miðnætti þegar nýtt ár gengur í garð. Veðurþættir eins og vindur og úrkoma hafa áhrif á mengun en litlar líkur eru á úrkomu fyrsta dag ársins. Töluverð óvissa er enn þá í veðurspám, samkvæmt Veðurstofu Íslands.

Miðað við undanfarin ár gæti fyrsti janúar 2019 orðið fyrsti svifryksdagur ársins vegna flugeldamengunar. Heilsuverndarmörkin á sólarhring eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. Hægt er að fylgjast með styrk svifryks á þjónustusíðu borgarinnar.

Loftgæðamælistöðvar sem mæla svifryk í Reykjavík eru staðsettar við Grensásveg, í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, við Njörvasund og við Egilshöll.

Fólk með viðkvæm öndunarfæri, hjarta- og æðasjúkdóma og börn eru sérstaklega viðkvæm fyrir svifryki. Æskilegast er fyrir þennan hóp að vera innandyra þegar mest gengur á í kringum miðnættið og loka gluggum. Ef svifryksmengun verður eins mikil og búist er við gæti heilbrigt fólk einnig fundið fyrir ertingu og óþægindum í öndunarfærum, jafnvel fram eftir nýársdegi.

Söfnun í þær tíu áramótabrennur sem verða í Reykjavík gengur vel. Brennurnar verða flestar tendraðar kl. 20.30 með tveimur undantekningum, Úlfarsfelli er tendrað kl. 15 um daginn og í Skerjafirði er eldur borinn að kestinum kl. 21 eftir blysför sem hefst kl. 20.30. Sjá nákvæma staðsetningu á brennum á þessu korti, að því er segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert