Fjórtan Eurojackpot-milljónir til Íslands

Einn vinningsmiðanna í Eurojackpot í kvöld var keyptur á Íslandi.
Einn vinningsmiðanna í Eurojackpot í kvöld var keyptur á Íslandi.

Einn vinningsmiðanna í Eurojackpot í kvöld var keyptur á Íslandi, en á miðann komu allar aðaltölurnar fimm, þriðji vinningur, sem skilar heppnum miðahafa yfir 14 milljónum króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá.

Þá var einn íslenskur miðahafi með fjórar Jókertölur réttar í réttri röð, sem skilaði honum öðrum vinningi, eða 100.000 krónum. Sá miði var keyptur í Mosfellsbæ, samkvæmt tilkynningunni.

Fyrsti vinningur kvöldsins gekk ekki út, en fjórir evrópskir miðahafar lönduðu öðrum vinningi, sem skilar þeim andvirði rúmlega 51 milljónar króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert