Yrði eitt stærsta afþreyingarfyrirtækið í ferðaþjónustu

Viðræður standa yfir um samruna fimm fyrirtækja í ferðaþjónustu.
Viðræður standa yfir um samruna fimm fyrirtækja í ferðaþjónustu. mbl.is/Sigurður Sigmundsson

Viðræður um samruna ferðaþjónustufyrirtækisins Arctic Adventures og fimm félaga í eigu Icelandic Tourism Fund eru á lokastigi. Með samrunanum gæti orðið til eitt stærsta afþreyingarfyrirtækið í íslenskri ferðaþjónustu.

Að því er heimildir Morgunblaðsins herma eru félögin Into the Glacier, sem rekur ísgöngin í Langjökli, og The Lava Tunnel, sem skipuleggur ferðir í Raufarhólshelli í Leitahrauni í Ölfusi, meðal þeirra sem sameina á Arctic Adventures.

Forsvarsmenn Landsbréfa, sem rekur Icelandic Tourism Fund, og Arctic Adventures, vörðust frétta af samrunanum í gær.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert