„Mikið kappsmál að uppfæra vélina“

Ráðist var í umfangsmikla uppfærslu á flugleiðsögubúnaði TF-LIF.
Ráðist var í umfangsmikla uppfærslu á flugleiðsögubúnaði TF-LIF. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Um miðjan nóvember var ráðist í umfangsmikla uppfærslu á flugleiðsögubúnaði TF-LIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar, og var kanadíska fyrirtækið Heli One fengið til verksins.

Flugvirkjar hafa undanfarnar vikur unnið dag og nótt við breytinguna á vélinni sem er nú loksins tilbúin með nýjan fullkomnari flugleiðsögubúnað, að því er Landhelgisgæslan greinir frá.

„Hann er með öflugri gagnagrunni en sá gamli og er vottaður fyrir nútímaflugleiðsögu. Það er óhætt að segja að tími hafi verið kominn á breytinguna en fyrir uppfærsluna var einungis hægt að fljúga vélinni í dagsbirtu þar sem ekki fengust lengur varahlutir í gamla búnaðinn sem var fyrir löngu orðinn úreltur. Því var mikið kappsmál að uppfæra vélina og koma henni í nútímalegt horf en verkið var bæði umfangsmikið og tímafrekt,“ segir Gæslan.

Enn fremur segir, að um mikið framfaraskref sé að ræða fyrir vélina sem hafi þjónað þjóðinni með góðum árangri frá árinu 1995 og muni gera áfram næstu árin.

Vélin er þegar komin í notkun og áhöfn hennar æfði með áhöfninni á varðskipinu Þór í morgun.

Það er óhætt að segja að tími hafi verið kominn …
Það er óhætt að segja að tími hafi verið kominn á breytinguna en fyrir uppfærsluna var einungis hægt að fljúga vélinni í dagsbirtu þar sem ekki fengust lengur varahlutir í gamla búnaðinn sem var fyrir löngu orðinn úreltur. Ljósmynd/Landhelgisgæslan
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert