Segir allt loga í febrúar semjist ekki

Frá fyrsta formlega samningafundi VR og SA fyrir 84 dögum.
Frá fyrsta formlega samningafundi VR og SA fyrir 84 dögum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Samningaviðræðurnar um endurnýjun kjarasamninga hafa gengið allt of hægt og nú verða menn að einsetja sér að setja kraft í þær, að sögn Aðalsteins Árna Baldurssonar, formanns Framsýnar.

Að öðrum kosti muni verkalýðshreyfingin telja sig knúna til að fara í aðgerðir, segir hann í umfjöllun um samningamálin í Morgublaðinu í dag.

„Ef ekkert skýrist fyrr sé ég fyrir mér átök upp úr næstu mánaðamótum og sumir vilja jafnvel að það verði fyrr. Það mun í það minnsta allt loga í febrúar semjist ekki. Menn hafa verið að hittast af og til yfir kaffibolla. Ég segi, leggjum kaffibollana til hliðar og klárum þetta, það er öllum til hagsbóta.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert