Vel mætt á fund um Vestfjarðarveg

Frá fundinum í kvöld.
Frá fundinum í kvöld. Ljósmynd/Guðlaugur J. Albertsson

Rúmlega 150 manns mættu á fund Vegagerðarinnar sem var haldinn á Reykhólum þar sem rætt var um vegaframkvæmdir um Gufudalssveit.

Vegagerðin segir að hin svokallaða Þ-H-leið um Teigsskóg sé besti kosturinn. Niðurstöður valkostagreiningar verkfræðistofu á Vestfjarðavegi um Reykhólahrepp benda aftur á móti til þess að Reykhólaleið R sé vænlegasti leiðarvalskosturinn.

Fólk frá sveitunum í kring mætti á fundinn ásamt fólki af sunnanverðum Vestfjörðum og var húsfyllir. Helmingur þingmanna Norðvesturkjördæmis mætti einnig á fundinn.

Þegar í ljós kom að fundurinn yrði svona fjölmennur kom í ljós að raddböndin ein og sér myndu ekki duga, var brugðist skjótt við og náð í hljóðkerfi.

Ljósmynd/Guðlaugur J. Albertsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert