Rannsóknasjóður úthlutar 850 milljónum

Rannís hefur umsjón með Rannsóknasjóði, sem nú hefur úthlutað 850 …
Rannís hefur umsjón með Rannsóknasjóði, sem nú hefur úthlutað 850 milljónum króna til fjölbreytta verkefna.

Stjórn Rannsóknasjóðs hefur úthlutað nýjum styrkjum fyrir árið 2019 til 61 rannsóknaverkefnis, samtals um 850 milljónum króna, en sjóðurinn styrkir verkefni á öllum sviðum vísinda. Lista yfir úthlutunina má sjá á vef Rannís.

Sjóðnum bárust alls 359 umsóknir og er hlutfall úthlutunar í ár 17%, samkvæmt fréttatilkynningu frá Rannís, en  á hverju ári eru veittir um 2,5 milljarðar króna til sjóðsins, þar af fara um 1,7 milljarðar króna í framhaldsstyrki til eldri verkefna, en almennt eru styrkir sjóðsins til þriggja ára. Umsóknum fjölgar á milli ára og voru þær sem dæmi 291 árið 2016.

Sjóðurinn úthlutar styrkjum á öllum sviðum vísinda, allt frá styrkjum til doktorsnema til svokallaðra öndvegisstyrkja, sem veittir eru til stórra verkefna sem skara fram úr á sínu sviði og hafa alþjóðlega tengingu.

Þremur öndvegisstyrkjum var úthlutað að þessu sinni, en hver öndvegisstyrkur er um 150 milljónir króna til þriggja ára, en þá hlutu:

  • Bjarni Kristófer Kristjánsson, Háskólanum á Hólum, til verkefnisins Samþætting vist-, þróunar- og þroskunarfræðilegra þátta til mótunar á líffræðilegri fjölbreytni: Hornsíli í Mývatni sem líkan.
  • Egill Skúlason, Raunvísindastofnun, til verkefnisins Binding niturs við umhverfisaðstæður með kerfisbundinni hönnun á rafendahvötum.
  • Jón Ólafsson, Háskóla Íslands, til verkefnisins Lýðræðisleg stjórnarskrárgerð: Tekist á um borgaraþátttöku, vald stofnana og sameiginleg gæði.

Um Rannsóknasjóð

Rannsóknasjóður er leiðandi samkeppnissjóður hér á landi. Hlutverk hans er að efla grunnrannsóknir í þágu vísinda og samfélags og mennta ungt fólk til vísindarannsókna með því að styðja framúrskarandi verkefni og frábæra vísindamenn. Sjö fagráð, auk ytri matsmanna, meta umsóknir í sjóðinn og er matsferlið hliðstætt því sem best þekkist meðal erlendra sjóða. Stjórn sjóðsins tekur endanlega ákvörðun um styrkveitingar.

Áhrifa Rannsóknasjóðs gætir víðs vegar. Þau má sjá í öflugum þekkingarfyrirtækjum sem byggja á vísindagrunni og öflugu starfi í þágu samfélags á sviðum eins og lýðheilsu, lífhagkerfi, nýtingu náttúruauðlinda og eftirliti með náttúruvá. Niðurstöður rannsókna styðja við hagvöxt og heilbrigt samfélag. Íslenskir vísindamenn standa framarlega í alþjóðlegu samhengi, þeir eru í miklu alþjóðlegu samstarfi, meðal annars í gegnum vísindasjóð Evrópusambandsins, og birta ritrýndar greinar til jafns við samanburðarlöndin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert