Nýr bátur smíðaður í Hollandi

Magni er stærsti og öflugasti dráttarbátur Faxaflóhafna núna.
Magni er stærsti og öflugasti dráttarbátur Faxaflóhafna núna. mbl.is/Ómar Óskarsson

Stjórn Faxaflóahafna samþykkti á fundi í gær að heimila Gísla Gíslasyni hafnarstjóra að ganga frá smíðasamningi á nýjum dráttarbáti samkvæmt tilboði Damen Shipyards í Hollandi.

Tilboðið hljóðaði upp á 7.594.00 evrur, eða jafnvirði tæplega 1.040 milljóna íslenskra króna. Þessi ákvörðun var tekin á grundvelli niðurstöðu mats ráðgjafa og óháðs aðila á fyrirliggjandi tilboðum.

Tilboð í smíði á nýjum dráttarbáti voru opnuð í nóvember sl. Báturinn átti að vera um 33 metrar á lengd og hafa 80 tonna togkraft, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert