Fann kannabis, kókaín og fjármuni

mbl.is/Hjörtur

Lögreglan á Suðurnesjum fann talsvert magn fíkniefna í húsleit sem gerð var í húsnæði í Suðurnesjabæ í síðustu viku að fenginni heimild. Um var að ræða kannabis og kókaín.

Einnig var lagt hald á fjármuni sem taldir eru vera ágóði af fíkniefnasölu sem grunur leikur á að fram hafi farið á staðnum, að því er lögreglan greinir frá.

Í öðru máli fundu lögreglumenn kannabis í bifreið sem stöðvuð var við hefðbundið eftirlit.

Í þriðja málinu fannst einnig kannabis hjá húsráðanda sem lögreglumenn þurftu að ræða við út af öðru.

Þá voru í fyrrinótt höfð afskipti af karlmanni sem var að kýla í leigubifreið fyrir utan skemmtistað í Keflavík. Maðurinn var í annarlegu ástandi og hlýddi ekki fyrirmælum lögreglu. Hann var því handtekinn og færður á lögreglustöð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert